Sport

Serena vann og átti högg dagsins í fyrsta leik eftir barnsburð | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Serena Williams fagnar sigri í nótt.
Serena Williams fagnar sigri í nótt. Vísir/Getty
Serena Williams, besta tenniskona sögunnar, sneri aftur með stæl í nótt þegar að hún vann Kasakann Zarinu Diyas í tveimur settum; 7-5 og 6-3, á Indian Wells á WTA-mótaröðinni.

Þetta var fyrsti leikur Serenu eftir barnsburð en hún spilaði síðast mótsleik í tennis fyrir fjórtán mánuðum síðan. Leikurinn tók hálfa aðra klukkustund en eftir erfitt fyrsta sett gekk sú bandaríska frá Diyas í öðru setti.

„Þetta var ótrúlegt. Ég er búin að vera frá í rúmt ár og eignast barn á leiðinni. Nú fæ ég bæði að fara heim og keppa,“ sagði kampakát Serena eftir sigurinn.

„Þetta var svo sannarlega ekki auðvelt. Þetta var samt fín. Ég er svolítið ryðguð en það skiptir ekki máli. Ég er bara að reyna að njóta ferðarinnar og gera mitt besta,“ sagði Serena.

Serena Williams er einstakur íþróttamaður eins og sást í leiknum á móti Diyas en þrátt fyrir að vera að snúa aftur eftir fjórtán mánaða fjarveru og barnsburð átti hún auðvitað högg dagsins eins og sjá má hér að neðan.

Serena þakkar fyrir stuðninginn.Vísir/Getty
Serena Williams í leiknum í nótt.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×