Innlent

Mosfellsbær tekur á móti flóttafólki í fyrsta sinn

Sigurgeir Ingi Þorkelsson Eyvinds skrifar
Í hópnum eru sex fullorðnir og fjögur börn, þar af eitt ungmenni eldra en 18 ára.
Í hópnum eru sex fullorðnir og fjögur börn, þar af eitt ungmenni eldra en 18 ára. Vísir/GVA
Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í Mosfellsbæ hafa undirritað samning um móttöku 10 flóttamanna. Þetta er í fyrsta sinn sem Mosfellsbær tekur formlega á móti flóttafólki. Í hópnum eru sex fullorðnir og fjögur börn, þar af eitt ungmenni eldra en 18 ára.

Þetta er þriðji samningurinn af þessu tagi sem undirritaður er á árinu og alls snúa þeir að mótttöku 52 einstaklinga sem kom frá Írak, Sýrlandi og Úganda. Frá árinu 2016 hafa íslensk stjórnvöld eflt móttöku flóttafólks til muna og tekið á móti 155 einstaklingum.

Sveitarfélögin sem taka á móti flóttafólki undirbúa komu þess í nánu samstarfi við velferðarráðuneytið og Rauða krossinn á Íslandi. Flóttafólkinu er meðal annars tryggt húsnæði með innbúi, félagsleg ráðgjöf, aðstoð við atvinnuleit og fjárhagsaðstoð til framfærslu.

„Það er mikilvægt fyrir okkur sem þjóð að við höfum bæði vilja og getu til að leggja okkar af mörkum í samfélagi þjóðanna. Vandi þess fjölda fólks sem þarf að flýja styrjaldir, ofsóknir og margvíslega neyð er vandi okkar allra. Við höfum skyldur, við berum ábyrgð og við eigum að sýna hug okkar í verki“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×