Körfubolti

Fræga fólkið hefur frábær áhrif á NBA-kónginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Söngkonan Rihanna fylgist hér með LeBron James í leik
Söngkonan Rihanna fylgist hér með LeBron James í leik Vísir/Getty
LeBron James er frábær körfuboltaleikmaður sem hefur hefur verið einn sá allra besti í NBA-deildinni í einn og hálfan áratug.

Hann er að skila frábærum tölum í flestum leikjum og er sem dæmi með 27,1 stig, 7,3 fráköst og 7,1 stoðsendingar að meðaltali í leik í 1125 leikjum sínum í NBA.

Nú hafa menn líka reiknað út meðalskor NBA-kóngsins út frá því hvaða frægu einstaklingar sitja á gólfinu á leikjum hans.

Það má sjá þessa skemmtilegu tölfræði hér fyrir neðan. Þar kemur bersýnilega í ljós að það hefur góð áhrif á hann að sjá heimfrægan og vinsælan einstakling á hliðarlínunni.







LeBron James er 33 ára gamall í dag og er ekki mikið að gefa eftir en í fyrstu 64 leikjum hans á tímabilinu er hann með 27,0 stig, 8,4 fráköst og 9,0 stoðsendingar að meðaltali í leik.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×