Lífið

Þetta eru pörin í Allir geta dansað

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svakaleg pör sem taka þátt í Allir geta dansað.
Svakaleg pör sem taka þátt í Allir geta dansað.
Allir geta dansað fer í sýningu á Stöð 2 þann 11. mars en um er að ræða íslenska útgáfu af þáttunum Dancing with the Stars. Þættirnir verða allir í beinni útsendingu og hefst fyrsti þátturinn klukkan 19:10.

Fimm karlmenn og fimm konur taka þátt í þáttunum. Þessir aðilar eru paraðir við fimm fagdanskonur og fimm fagdansarar.

Þátttakendur eru í upphafi paraðir saman og eru með sama dansfélaga í öllum þátttunum, eða eins langt og viðkomandi par nær í keppninni. Hvert danspar æfir sitt atriði í vikunni fyrir útsendingu. Dansarinn stýrir æfingunum og setur upp rútínuna sem notuð verður.

Hér að neðan má sjá hvaða fagdansarar eru paraðir saman við þjóðþekkta einstaklinga. Þessi pör keppa á móti hvort öðru og aðeins stendur eitt danspar eftir í lokin sem sigurvegari.

Kynnar þáttarins verða þær Eva Laufey Kjaran Hermansdóttir og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir. Þátturinn hefst klukkan 19:10 á sunnudagskvöldið.



Dómarar eru:

• Selma Björnsdóttir

• Karen Reeve

• Jóhann Gunnar Arnarson

Pörin eru eftirfarandi:

Bergþór Pálsson og Hanna Rún Bazev Óladóttir
(til hægri)

Sölvi Tryggvason og Ástrós Traustadóttir (til vinstri)

Jón Arnar Magnússon og Hrefna Dís Halldórsdóttir (til hægri)

Arnar Grant og Lilja Guðmundsdóttir (til vinstri)

 

Jóhanna Guðrún og Maxim Petrov (til vinstri)

Hugrún Halldórsdóttir og Daði Freyr Guðjónsson (til hægri)

Lóa Pind Aldísardóttir og Sigurður Már Atlason (til vinstri)

Óskar Jónasson og Telma Rut Sigurðardóttir (til hægri)

Hrafnhildur Lúthersdóttir og Jón Eyþór Gottskálkson (til hægri)

Ebba Guðný Guðmundsdóttir og Javier Fernández Valiño (til vinstri)

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×