Innlent

Kærkomin stund milli storma

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það er betra að halda í töskurnar sínar á morgun.
Það er betra að halda í töskurnar sínar á morgun. VÍSIR/ERNIR
Þrátt fyrir að veðrið í dag verði fremur tíðindalítið að sögn Veðurstofunnar eru hlutirnir þó „heldur betur að gerast langt suður í hafi.“ Þar er að myndast kröpp lægð sem mun hreyfast hratt norður á bóginn í nótt.

Úrkomukerfi lægðarinnar mun nálgast landið í fyrramálið og þykknar þá upp og hvessir. Lægðin dýpkar þá jafnt og þétt og gerir því suðaustanstorm eða -rok á landinu, jafnvel ofsaveður um tíma. Einnig er spáð talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu á morgun og úrhelli á Suðausturlandi.

Gular viðvaranir eru því í gildi fyrir allt landið á morgun.

„Sem betur fer er lægðin á hraðferð svo að veðrið gengur ört niður vestanlands og léttir til þar, þó verður áfram hvasst og vætusamt eystra fram á kvöld,“ segir veðurfræðingur. Hann bætir við að fimmtudagurinn gefi einnig kærkomna stund milli stríða en næsta illvirðislægð er væntanleg á föstudaginn kemur.

Veðurhorfur á landinu í dag

Suðvestlæg átt, 10-18 m/s og skúrir eða slydduél framan af morgni, en síðar snjóél, hvassast við sjávarsíðuna. Mun hægari og léttskýjað NA-til. Hiti yfirleitt 2 til 7 stig, en hægari vindur og úrkomuminna eftir hádegi og kólnar talsvert, frost víða 0 til 5 stig í kvöld.

Veðurhorfur næstu daga

Á miðvikudag:

Suðaustan 18-25 m/s með snjókomu eða slyddu framan af degi, en síðar rigningu. Talsverð eða mikil úrkoma syðra, en lengst af úrkomulítið fyrir norðan. Hlýnar í veðri og hiti 1 til 8 stig undir hádegi, hlýjast syðst. Snýst í suðvestan 8-15 með éljum V-til seinni partinn og kólnar í veðri.

Á fimmtudag:

Sunnan og suðvestan 13-18 m/s og él, en heldur hægara og léttskýjað NA-til. Frost yfirleitt 0 til 5 stig.

Á föstudag:

Gengur í suðaustanstorm eða -rok með talsverðri eða mikilli rigningu eða slyddu, en mun úrkomuminna fyrir norðan. Hiti 2 til 7 stig síðdegis.

Á laugardag:

Sunnanhvassviðri eða -stormur framan af degi, en dregur síðan talsvert úr vindi. Rigning eða slydda víða á landinu, en þurrt að kalla nyrðra. Kólnar í veðri.

Á sunnudag:

Hæg suðlæg átt og dálítil slydda eða rigning á A-verðu landinu, en annars hægviðri og þurrt. Hlýnar smám saman í veðri.

Á mánudag:

Útliti fyrir milda suðaustanátt með smá vætu víða um land, en bjartviðri fyrir norðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×