Fótbolti

Conte sefur ekki fyrir áhyggjum af Messi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Conte er áhyggjufullur þessa dagana
Conte er áhyggjufullur þessa dagana vísir/afp
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, sefur ekki af áhyggjum af því hvernig hann eigi að sigra Barcelona en fyrri leikur liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fer fram í kvöld.

Chelsea hefur gengið vel gegn Barcelona á undanförnum árum og þar stendur helst upp úr sigurinn í undanúrslitunum árið 2012 þar sem Chelsea kom til baka eftir að hafa verið tveimur mörkum undir og náði að vinna einvígið og koma sér í úrslitin.

Sömu sögu er þó ekki að segja af síðustu leikjum liðsins á þessu tímabili. Englandsmeistararnir hafa aðeins unnið fjóra af síðustu 12 leikjum sínum, þar af sigur gegn botnliði úrvalsdeildarinnar og bikarsigur gegn 1. deildar liði Hull í síðustu tveimur leikjum.

„Það þarf að undirbúa sig mjög vel fyrir svona leiki, hvert smáatriði þarf að vera undirbúið fyrirfram,“ sagði Conte fyrir leikinn.

„Við erum búnir að búa til áætlun fyrir leikinn og ég held að það sé mjög mikilvægt að velja þá leikmenn í liðið sem eru í sínu besta formi.“

Lionel Messi, einn besti ef ekki sá besti í heiminum, hefur aldrei náð að skora gegn Chelsea þrátt fyrir að hafa mætt þeim bláklæddu átta sinnum á ferlinum.

„Hann er besti leikmaður heims. Hann getur leyst hvaða aðstæður sem er og búið til marktækifæri þegar enginn annar finnur lausnir.“

„Við vitum að við þurfum að vera undir það búnir að berjast við mótlæti í leiknum, en við verðum líka að hugsa um að fara í sókn og skora þegar tækifæri gefst,“ sagði Antonio Conte.

Leikur Chelsea og Barcelona er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld og hefst upphitun klukkan 19:15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×