Glamour

Ljóti skórinn sem slær öllum öðrum við

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Ljótir og klunnalegir strigaskór eru mikið í tísku núna, en stundum virðist eins og hönnuðir séu að gera grín. Christopher Kane er alltaf einn af þeim, en hann hefur oftar en einu sinni sent hina umdeildu Crocs niður tískupallinn. Á dögunum sýndi hann vetrarlínu sína fyrir árið 2018  þar sem eitt atriði stakk svo sannarlega í augun.

Í þetta skiptið vann hann með heilsuskóafyrirtækinu Z-Coil sem framleiðir dempara og púða í skó, til að gera þá þægilegri. Úr samstarfinu varð mjög furðulegur skór, einhverskonar heilsuskór með bróderuðum steinum og gúmmíhæl. 

Þó að við séum alveg að venjast ljótu strigaskóaatískunni þá er langt í það að við verðum hrifnar af þessum. En kosturinn er kannski sá að þeir eru allavega þægilegir.

Mynd/Vogue





×