Enski boltinn

Aguero fær ekki refsingu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Aguero er hér í átökunum við áhorfandann.
Aguero er hér í átökunum við áhorfandann. vísir/getty
Sergio Aguero verður ekki refsað af enska knattspyrnusambandinu fyrir atburðarásina eftir bikarleik Manchester City og Wigan í gærkvöld. Vefmiðillinn goal.com greinir frá þessu.

Aguero sló til stuðningsmanns Wigan sem var á meðal þeirra stuðningsmanna sem ruddust inn á völlinn í Wigan eftir leikinn.

Sjá einnig: Aguero sló til áhorfanda

Knattspyrnusambandið er þó enn að rannsaka atburðarásina og gæti Wigan hlotið refsingu fyrir að hleypa stuðningsmönnunum inn á völlinn.

Þá greina enskir fjölmiðlar frá því að Manchester City og Sergio Aguero séu að íhuga að lögsækja stuðningsmann Wigan fyrir að slá Aguero og hrækja á hann.


Tengdar fréttir

Will Grigg á eldi og City úr leik

Norður-Írinn, Will Grigg, var hetja Wigan þegar C-deildarliðið gerði sér lítið fyrir og henti Manchester CIty úr leik í enska bikarnum. Lokatölur 1-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×