Handbolti

Stefán með þrjú mörk og Pick eltir Veszprém eins og skugginn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Stefán í leik með ungverska liðinu.
Stefán í leik með ungverska liðinu. vísir/afp
Pick Szeged heldur áfram á sigurbraut í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, en liðið vann níu marka stórsigur á útivelli gegn Eger-Mol, 33-24.

Þetta var fimmti sigurleik Pick Szeged í röð, en Stefán Rafn hefur verið að finna sig afar vel á tímabilinu og raðað inn mörkum fyrir liðið. Pick leiddi í hálfleik, 15-12.

Lokatölur urðu svo eins og áður segir, níu marka sigur Pick, 33-24, en liðið er áfram tveimur stigum á eftir toppliði Veszprém sem vann Ferencváros á sama tíma. Veszprém á einnig tvo leiki til góða.

Stefán Rafn fann sig ágætlega í leiknum og skoraði fjögur mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×