Innlent

Ógæfufólki og brennuvörgum bægt í burtu

Sveinn Arnarsson skrifar
Eins og sjá má er hverfið að byggjast upp syðst í bæjarlandinu. Stutt er í
Kjarnaskóg frá nýju Hagahverfi.
Eins og sjá má er hverfið að byggjast upp syðst í bæjarlandinu. Stutt er í Kjarnaskóg frá nýju Hagahverfi. Vísir/Auðunn
Tilvonandi íbúar í nýju Hagahverfi á Akureyri hafa með samstilltu átaki bægt ógæfufólki sem öðru fólki stendur ógn af burt úr íbúahverfi sínu syðst á Akureyri.

Til stóð að setja þennan hóp í smá- hýsi í hinu nýja hverfi.  Urðu margir hverjir fokillir út í bæjaryfirvöld fyrir að auglýsa nýtt skipulag sem breyta átti götunni Nonnahaga. Í stað þriggja einbýlishúsa átti að setja upp þjónustuíbúðir fyrir „vímuefnaneytendur og ótuktarlýð“ eins og einn tilvonandi íbúi orðaði það.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi að auglýsa tillöguna. Hún gekk út á að fólk sem býr við fjölþættan vanda  byggi á staðnum auk þess að þarna yrðu skipulagðar íbúðir fyrir fatlaða einstaklinga.

Þeir sem höfðu keypt hús á svæðinu urðu furðu lostnir við þessa ákvörðun bæjarstjórnar.

Hulda Frímannsdóttir er ein þeirra sem töluðu gegn hugmyndinni og hefur nú lagt bæjarstjórn að velli. Vísir/Auðunn
„Um er að ræða einstaklinga sem ekki er talið forsvaranlegt að hafa í venjulegum fjölbýlishúsum. Ástæðan er ónæði, ógn og hætta sem nágrönnum getur stafað af þessu fólki, svo sem vegna hávaða, óþrifa, hættu á íkveikju eða annars konar skemmdum á húsnæði,“ segir í greinargerð með tillögunni.

Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem horfið var frá þessum hugmyndum og því má segja að tilvonandi nágrannar hafi unnið fullnaðarsigur.

„Það er mat okkar undirritaðra að ekki sé hægt að setja húsnæðisúrræði eins og smáhýsi inn á þegar deiliskipulagt svæðisem er í fullri uppbyggingu,“ segir í tilkynningu meirihlutans.

„Það er hins vegar okkar mat að þjónustukjarni fyrir einstaklinga með fötlun eigi eftir að sóma sér vel á fyrirhuguðum stað enda eiginlegur hluti af hverfinu og fordæmi fyrir því víða í bænum.“

„Við samþykktum að auglýsa tillöguna og nú er það í höndum bæjarbúa að hafa áhrif með því að senda inn um sagnir og við hvetjum fólk til að senda inn umsagnir,“ segir Ingibjörg Isaksen, sem ræddi tillöguna á síðasta fundi í bæjarstjórn Akureyrar. „Mín persónulega skoðun er sú að þetta sé ekki heppileg staðsetning.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×