Golf

Tiger varafyrirliði í Ryder-liði Bandaríkjanna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger var líka varafyrirliði á síðasta Ryder.
Tiger var líka varafyrirliði á síðasta Ryder. vísir/getty
Fyrirliði bandaríska Ryder-liðsins, Jim Furyk, hefur útnefnt þá Tiger Woods og Steve Stricker sem varafyrirliða sína á mótinu sem fer fram í París í ár.

Bandaríkjamenn hafa titil að verja frá því á Hazeltine árið 2016. Mótið fer fram í lok september og því ekki seinna vænna að fara að velja fyrirliða.

„Það verður mikil áskorun að vinna í París. Það er mikilvægt fyrir mig og bandarískt golf að hafa Steve og Tiger með okkur,“ sagði Stricker sem mun bæta við enn fleiri varafyrirliðum á seinni stigum.

Tiger á ekki lengur möguleika að vinna sér sæti í Ryder-liðinu sem kylfingur en var tilbúinn að vera félögum sínum innan handar. Hann var síðast með sem kylfingur á Ryder Cup árið 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×