Fótbolti

Ginola að verða pabbi á sextugsaldri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ginola ásamt unnustu sinni.
Ginola ásamt unnustu sinni. vísir/getty
Fótboltakempan og fyrirsætan David Ginola verður faðir á þessu ári en unnusta hans, sem er 23 árum yngri en hann, á von á sér síðar á árinu.

Ginola er orðinn 51 árs gamall og er heldur betur á öðrum stað en hann var fyrir tveim árum síðan. Þá fékk hann hjartaáfall í góðgerðarleik og var næstum dáinn. Hann dó reyndar í átta mínútur en það tókst á einhvern ótrúlegan hátt að bjarga lífi hans.





Skömmu eftir það áfall skildi Ginola við eiginkonu sína til 25 ára. Hann byrjaði skömmu síðar með núverandi unnustu sinni sem er 28 ára gömul.

Ginola á tvö börn úr gamla hjónabandinu. Þau eru 26 og 24 ára gömul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×