Menning

Litrík dagskrá á frönskum nótum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Duo Ultima hefur verið til í þrettán ár, gefið út þrjá diska og farið víða um veröldina.
Duo Ultima hefur verið til í þrettán ár, gefið út þrjá diska og farið víða um veröldina.
Sæl og blessuð, byrjar Aladár Rácz píanóleikari símtalið þegar ég slæ á þráðinn til að forvitnast um tónleika Duo Ultima í kvöld í Norræna húsinu sem hefjast klukkan 20.  Mér léttir við að heyra hversu góða íslensku hann talar og segi honum það.

„Það er nú bara fyrsta setningin,“ segir hann prakkaralega – þó annað komi á daginn.

French Connection er yfirskrift tónleikanna í Norræna, þeir tilheyra röðinni Klassík í Vatnsmýrinni.  Þar ætla þeir Aladár Rácz og Guido Bäumer, sem spilar á alt-saxófón, að flytja litríka dagskrá á frönskum nótum.  „Af hverju? Við gáfum út disk með þessu heiti árið 2017, French Connection, og þetta eru lögin af honum, öll eftir frönsk tónskáld.“

Aladár Rácz kveðst hafa búið á Íslandi í átján ár, þar af fjórtán á Húsavík. Hann og Guido Bäumer hafa starfað saman í þrettán ár og haldið fjölda tónleika á Íslandi og víða um heim.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×