De Gea frábær er United gerði markalaust jafntefli | Sjáðu allt það helsta

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sevilla og Manchester United gerðu markalaust jafntefli í kvöld, en leikurinn var fyrri leikur liðanna í 16-liða úrslitunum.

Sevilla voru mun sterkari í fyrri hálfleik og David De Gea var algjörlega stórkostlegur í markinu hjá United. Hann varði í tvígang stórkostlega undir lok fyrri hálfleiks.

Í síðari hálfleik vörðust United-menn fimlega, en sóttu ekki mikið. Agaður leikur hjá Jose Mourinho og lærisveinum hans. Lokatölur markalaust jafnefli.

Liðin mætast aftur 13. mars á Old Trafford.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira