Aukaspyrnumark Fred tryggði Shaktar sigur | Sjáðu mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Shaktar Donetsk kom til baka gegn Roma á heimavelli í fyrri leik og vann 2-1 sigur í leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Cengiz Under kom Roma yfir skömmu fyrir leikhlé, en hann skoraði eftir undirbúning frá Edin Dzeko. 1-0 í hálfleik.

Facundo Ferreyra jafnaði fyrir Shaktar þegar sjö mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og Fred skoraði sigurmarkið á 71. mínútu með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu.

Shaktar er því með pálmann í höndunum fyrir síðari leik liðanna á Ítalíu, en Roma er þó með útivallarmark í farteskinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira