Fótbolti

Pogba á bekknum gegn Sevilla

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það er spurning hvort að Pogba komi inná í í kvöld?
Það er spurning hvort að Pogba komi inná í í kvöld? vísir/afp
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, verður varamaður í kvöld í leik liðsins gegn Sevilla í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. BBC greinir frá þessu á vef sínum.

BBC greinir frá því að þeir Nemanja Matic, Ander Herrera og Scott McTominay verði á miðjunni í kvöld og Frakkinn verði meðal varamanna United-liðsins.

Einhverjar sögusagnir hafa verið í gangi að Pogba og Mourinho séu í einhverju stríði og því sé Pogba varamaður í kvöld. Hann spilaði ekki gegn Huddersfield á laugardag vegna veikinda og spilaði síðasta leik sinn fyrir United þann 11. febrúar í sigri á Newcastle.

Búist var við að hann yrði í byrjunarliðinu í kvöld, en samkvæmt vef BBC verður hann á bekknum. Þetta er fyrri leikur liðanna í 16-liða úrslitunum, en leikið verður á Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×