Körfubolti

Komst í undanúrslit bikarsins en var rekinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr undanúrslitaleik Breiðabliks og KR.
Úr undanúrslitaleik Breiðabliks og KR. vísir/anton
Lárus Jónsson, þjálfara Breiðabliks, hefur verið vikið frá störfum sem þjálfara Breiðabliks í fyrstu deild karla í körfubolta.

Þetta var annað tímabilið sem Lárus var við stjórnvölinn hjá félaginu, en einnig er hann þjálfari unglingaflokk félagsins sem varð meðal bikarmeistari á dögunum.

Breiðablik fór í bikarundanúrslit þar sem liðið tapaði naumlega fyrir fjórföldum Íslandsmeisturum KR. Liðið er einnig í 2.-3. sæti deildarinnar.

Chris Woods, erlendi leikmaður liðsins, mun stýra æfingum er því segir á Breiðablik.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×