Innlent

Rak upp í grynningar eftir vélarbilun

Gissur Sigurðsson skrifar
Hér má sjá eitt af björgunarskipum Landsbjargar, Odd V. Gíslason
Hér má sjá eitt af björgunarskipum Landsbjargar, Odd V. Gíslason Landsbjörg
Vélarbilun varð í línuskipinu Tjaldi þegar það var að koma úr róðri og ætlaði að leggjast við bryggju á Rifi á Snæfellsnesi í gærkvöldi.

Það var komið inn í höfnina þegar vélin bilaði, rak upp á grynningar og sat fast. Björgunarskip Landsbjargar á Rifi var mannað og sent til aðstoðar.

Auk þess var taug sett í land og togað í hana. Tjaldur losnaði af strandstað á ellefta tímanum í gærkvöldi og var dreginn að bryggju. Áhöfninni var ekki hætta búin á meðan á þessu stóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×