Lífið

Ríkasti maður heims giskar á verð á hversdagslegum vörum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það á enginn meiri pening en Bill Gates.
Það á enginn meiri pening en Bill Gates.
Bill Gates, stofnandi Microsoft, er ríkasti maður heims og er hann metinn á 86 milljarða dollara á lista Forbes yfir ríkasta fólk heims, sem gefinn var út í fyrra.

Það eru liðin ár og dagar frá því að Gates fór út að versla í venjulegri matvöruverslun.

Ellen DeGeneres fékk Gates til sín í spjallþátt sinn á dögunum og fékk þennan forríka mann til að taka þátt í skemmtilegum leik.

Leikreglur voru ekki flóknar og átti hann einfaldlega að giska á verðið á vörur sem fást í matvöruverslun.

Auðvelt fyrir hinn venjulega Jón en erfiðara fyrir Bill Gates eins og sjá má.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×