Innlent

Sátt að nást í stóra Grinda­víkur­málinu

Birgir Olgeirsson skrifar
Vísir sagði frá málinu í síðustu viku en íbúarnir eru hjón og sonur þeirra.
Vísir sagði frá málinu í síðustu viku en íbúarnir eru hjón og sonur þeirra. Vísir/Facebook/Ja.is
Húsfundi í Grindavík, þar sem ræða átti hvort vísa eigi þremur íbúum úr fjölbýlishúsi fyrir það að vera ekki orðnir 50 ára gamlir, var frestað því sátt virðist vera að nást í málinu.

Vísir sagði frá málinu í síðustu viku en íbúarnir eru hjón og sonur þeirra. Eiginmaðurinn verður fimmtíu ára á næsta ári en eiginkona hans verður fimmtíu ára í september. Nítján ára gamall sonur þeirra býr hjá þeim.

Þau keyptu fyrir skömmu íbúð í fjölbýlishúsinu að Suðurhópi 1. Það hús er aðeins ætlað fólki sem er fimmtíu ára eða eldra.

Á fundinum sem var frestað var ætlunin að ræða tillögu þess efnis að lögmanni yrði falið að leita allra leiða til að fá íbúana þrjá úr húsinu. Kom til greina að fara með kröfu um útburð fyrir dómstóla.

Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður húsfélagsins, segir að fundinum hafi frestað vegna þess að verið sé að reyna að ná sátt í málinu.

„Og það er nánast í höfn,“ segir Auður en sagðist þó ekki geta tjáð sig um það að svo stöddu í hverju sú sátt sé fólgin.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×