Fótbolti

Stuðningsmenn Íslands farnir að fá miðana sína

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Það var gaman hjá Íslendingum á pöllunum á EM í Frakklandi.
Það var gaman hjá Íslendingum á pöllunum á EM í Frakklandi. Vísir/Getty
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA vill ekki svara spurningum Vísis varðandi það hversu margar af 52.899 umsóknum frá stuðningsmönnum Íslands séu frá Íslendingum komnar. Þeir sem sóttu um miða í happdrætti um miða á leiki Íslands hafa ýmist fengið meldingu um að miðar séu komnir í hús eða að búið sé að strauja greiðslukort þeirra vegna miðakaupa. 

Stuðningsmennirnir gætu þurft að bíða allt fram í miðjan mars eftir staðfestingu hvort þeir hafi fengið miða eða ekki. Vissara er að stuðningsmenn gæti að því að heimild á greiðslukortum sé í lagi.

Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur engin frekari svör fengið frá FIFA vegna miðaumsókna stuðningsmanna Íslands.vísir/ernir
53 þúsund umsóknir íslenskra stuðningsmanna

Frá því var greint í janúar að 53 þúsund Íslendingar hefðu sótt um miða á leiki á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Óhætt er að segja að um mikinn fjölda sé að ræða enda tæplega tvisvar sinnum fleiri umsóknir en bárust frá stuðningsmönnum Íslands á Evrópumótið í Frakklandi sumarið 2016. Þá sóttu 27 þúsund stuðningsmenn Íslands um miða á leiki Íslands samkvæmt því sem fram kom á vef UEFA.

Vísir sendi FIFA fyrirspurn til að fá nánari útlistun á þessum tæplega 53 þúsund umsóknum um miða, þ.e. hvernig þær skiptust á leikina þrjá í riðlakeppninni og hversu margar þeirra væru frá Íslendingum. Vel má vera að hluti umsóknanna 53 þúsund frá stuðningsmönnum Íslands séu að einhverju leyti Argentínumenn sem skrá sig sem stuðningsmenn Íslands í von um að komast á leik Íslands og Argentínu í Moskvu, svo dæmi sé tekið.

Vísir reyndi að fá nánari skýringar á þessu hjá FIFA. Skemmst er að segja frá því að FIFA sagðist ekki myndu afla frekari upplýsinga varðandi miðaumsóknirnar. Þá var ítrekað að umsækjendur myndu í síðasta lagi fá upplýsingar um miðjan mars hvort þeir komist fái miða á leiki Íslands eða ekki.

Ýmislegt stendur Íslendingum til boða varðandi ferðalag til Rússlands, þar á meðal sigling milil borga.
KSÍ fær engin svör

Knattspyrnusamband Íslands hefur sömuleiðis spurst fyrir um málið hjá FIFA. Framkvæmdastjórinn Klara Bjartmarz sagðist í samtali við Vísi í gær ekki hafa fengið nánari skýringar á fjölda umsókna í nafni íslenskra stuðningsmanna. 

Ísland fær um átta prósent miða á alla leiki Íslands sem gerir um 3.200 miða á hvern leik. Einhver fjöldi Íslendinga var búinn að tryggja sér miða á leikina í fyrsta miðasöluferlinu.

Ljóst er að margir stuðningsmenn Íslands bíða með hjartað í buxunum eftir staðfestingu á því hvort þeir fái miða á leikina í riðlakeppninni; einn, tvo eða alla þrjá. Stuðningsmaður Íslands sem Vísir ræddi við í morgun var í skýjunum þegar hann sá að „Request Status“ á miðaumsókn hans hafði breyst úr „Pending“ í „Succesful“. Hann hafði sótt um miða fyrir sig, konuna og börnin tvö. Nú getur hann farið að huga að flugi og gistingu.

Ýmsir valmöguleikar eru í boði þegar kemur að því að ferðast til Rússlands. Gamanferðir, Vita Sport, Úrval Útsýn og Tripical bjóða allar upp á ferðalög til Íslands með fararstjórum til Rússlands. Þá býður ferðaskrifstofan Bjarmaland upp á siglingu á milli leikstaða í Rússlandi.

Þá er vakin athygli á því að stuðningsmenn Íslands þurfa að passa að sækja um svo kallað Fan ID, gæta að því  að vegabréfið sé í fullu gildi auk þess að skoða ferðatryggingamál sín vel og vandlega og í tæka tíð fyrir ferðalagið til Rússlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×