Innlent

Sex handteknir í aðgerðum lögreglu gegn kannabisræktun í borginni

Kjartan Kjartansson skrifar
Nærri því 400 kannabisplöntur fundust í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi. Myndin er úr safni.
Nærri því 400 kannabisplöntur fundust í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi. Myndin er úr safni. Vísir/Stefán
Hald var lagt á nærri því 400 kannabisplöntur í iðnaðarhúsi í Kópavogi nýlega. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ræktunin þar hafi verið sú stærsta af þeim sem hún hefur stöðvað á nokkrum stöðum í umdæminu undanfarið. Sex voru handteknir.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að um sex kíló af tilbúnum kannabisefnum til sölu hafi fundist í iðnaðarhúsnæðinu í Kópavogi. Ræktunin hafi verið „mjög fullkomin“ og búnaðurinn eftir því. Lögreglan tók meðal annars gróðurhúsalampa, blásara og straumbreyta í tuga tali í sína vörslu.

Þrír karlmenn voru handteknir í tengslum við ræktunina þar.

Þá stöðvaði lögreglan kannabisræktun í bílskúr í austurhluta Reykjavíkur. Þar var lagt hald á um 250 kannabisplöntur. Hálft kíló af kannabisefnum fannst einnig í bílskúrnum, en þar var sömuleiðis lagt hald á mikið af búnaði tengt ræktuninni. Einn var handtekinn vegna málsins.

Kókaín, MDMA og fjármunir fundust við húsleit í Hafnarfirði

Rúmlega 70 kannabisplöntur voru gerðar upptækar þegar ræktun var stöðvuð í fjölbýlishúsi í vesturhluta borgarinnar, en þar var sömuleiðis einn handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Loks lagði lögreglan hald á eitt og hálft kíló af tilbúnum kannabisefnum til sölu við húsleit í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Á sama stað fannst sömuleiðis ætlað kókaín og MDMA, auk fjármuna sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Einn var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Málin, sem eru óskyld, teljast öll upplýst, en fimm mannanna sem komu við sögu í þeim eru um þrítugt. Sjötti maðurinn sem var handtekinn i þessum aðgerðum er á sextugsaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×