Fótbolti

Guðmunda með tvö mörk í sigri Stjörnunnar

Dagur Lárusson skrifar
Úr leik hjá Stjörnunni.
Úr leik hjá Stjörnunni. vísir/Anton
Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Stjörnunnar á Þór/KA í A-deild Lengjubikars kvenna í dag.

Stjarnan byrjaði leikinn mun betur og kom fyrsta markið á 24. mínútu og var það Guðmunda Brynja sem skoraði það. Hún var síðan aftur á ferðinni tíu mínútum seinna og kom Stjörnunni í 2-0.

Harpa Þorsteinsdóttir skoraði síðan þriðja mark Stjörnunnar rétt fyrir hálfleik og því var róðurinn orðinn heldur þungur fyrir gestina.

Sandra Gutierrez minnkaði muninn fyrir gestina snemma leiks í seinni hálfleik og hleypti lífi í leikinn. Stjarnan var þó ekki lengi að skora aftur en það gerði Ana Victoria Cate á 57. mínútu og var staðan því orðin 4-1.

Þetta reyndust lokatölur leiksins og því fékk Stjarnan stigin þrjú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×