Handbolti

Aron skoraði þrjú gegn Kristianstad | Kiel tapaði

Dagur Lárusson skrifar
Aron Pálmarsson
Aron Pálmarsson Mynd/Twitter-Síða Barcelona
Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk í sigri Barcelona á Kristianstad í meistaradeildinni í handbolta í dag en Ólafur Guðmundsson og Arnar Freyr Arnarsson spiluðu fyrir Kristianstad.

Það voru gestirnir frá Spáni sem voru með yfirhöndina allan leikinn og unnu að lokum sigur 21-26. Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Barcelona en markahæsti leikmaður liðsins var frakkinn Dika Mem með fimm mörk.

Ólafur Guðmundsson skoraði eitt mark fyrir Kristianstad á meðan Arnar Freyr skoraði tvö. Markahæsti leikmaður sænska liðsins var daninn Nilsen.

Eftir leikinn er Barcelona í 2. sæti A-riðils með 18 stig á meðan Kristianstad er í neðsta sæti með 6 stig.

Arnór Atlason komst ekki á blað er lið hans Aalborg tapaði fyrir Celje. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel töpuðu naumlega fyrir Vive Kielce en leikurinn fór 29-30. Eftir leikinn er Kiel í 4. sæti B-riðils með 15 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×