Innlent

Vörubíll valt í Mosfellsbæ

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vettvangi óhappsins.
Frá vettvangi óhappsins. Vísir
Vörubíll valt frá hringtorginu við Álafossveg í Mosfellsbæ rétt fyrir hádegi í dag. Útkall um óhappið barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu rétt fyrir hádegi. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu sakaði ökumanninn ekki en slökkviliðsmenn eru á vettvangi til að hreinsa upp olíu og glussa sem lak frá bílnum. 

Fréttamaður á vettvangi segist hafa fengið þær upplýsingar að loftpúði undir bílnum hafi sprungið sem varð þess valdandi að bíllinn valt.

Var ökumaðurinn að flytja möl upp í Leirvogstungu í Mosfellsbæ þegar óhappið átti sér stað. 

Vísir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×