Innlent

Þórhildur segir rökstuddan grun um að Ásmundur hafi dregið sér fé

Birgir Olgeirsson skrifar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata. Vísir/Ernir

Reglur og lög landsins virðast aðeins gilda um almenning en ekki efsta lag þjóðfélagsins. Þetta sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, í Silfrinu í ríkissjónvarpinu í morgun.

Þar var hún mætt ásamt Stefáni Einari Stefánssyni blaðamanni Morgunblaðsins, Andrési Inga Jónssyni þingmanni Vinstri grænna og Atla Thor Fanndal blaðamanni til að ræða málefni líðandi stundar.

Talið barst talið að nýrri úttekt alþjóðlegu samtakanna Transparency International sem mælt hefur spillingu í ríkjum heims í aldarfjórðung. Er Ísland þar spilltasta ríki Norðurlandanna, en engu að síður í hópi þeirra ríkja þar sem hvað minnst spilling fyrirfinnst.

Heilbrigt umhverfi fyrir fjölmiðla

Þórhildur talaði fyrir því að sjálfstæðum fjölmiðlum yrði boðið upp á heilbrigt umhverfi þannig að þeir geti veitt yfirvaldinu aðhald. Stór hvati væri fyrir áframhaldandi spillingu með því að draga úr sjálfstæðum fjölmiðlum. Sagði Þórhildur það gert með því að höfða allt að því töpuð meiðyrðamál gegn litlum fjölmiðlum svo þeir geti ekki sinnt sínu starfi nægjanlega vel og fara fram á lögbann. Nefndi hún lögbann sem sett var á Stundina sem dæmi.

Hún sagði að það lægi við að draga þyrfti upplýsingar úr ráðamönnum með töngum og nefndi sem dæmi mál tengdum uppreist æru, Landsdómi og akstursgreiðslur þingamanna.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið gagnrýndur vegna aksturgreiðsla þingmanna.visir/pjetur

Dómstóla að skera úr um það

Vildi Þórhildur meina að uppi væri rökstuddur grunur um að Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefði dregið sér fé í formi akstursgreiðsla til þingmanna. Vildi hún einnig meina að uppi væri rökstuddur grunur um Sigríður Andersen dómsmálaráðherra hefði leynt upplýsingum er varða uppreist æru-málið og Landsréttarmálið

Þá taldi hún einnig rökstuddan grun um að Bjarni Benediktsson hefði í krafti valds síns leynt skýrslum og að uppi væri rökstuddur grunur um að hann hefði ekki í staðið í skilum því ekki hefðu fengist skýr svör frá honum vegna Panama-skjalanna.

Hún tók það fram að hún sé ekki að segja að þessir einstaklingar sem hún nefndi séu sekir, það sé dómstóla að skera úr um það. Hún sagði að lítið heyrðist frá stofnunum sem eiga að hafa eftirlit með ráðamönnum og nefndi þar ríkissaksóknara, lögreglu og ríkisendurskoðun.

Sagði hún aðeins eina opinbera rannsókn hafa farið fram á brotum æðstu ráðamanna og það hafi verið sakamálarannsókn gagnvart Árna Johnsen, fyrrverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, fyrir fjárdrátt.

Bragi Guðbrandsson, fráfarandi forstjóri Barnaverndarstofu.vísir/valli

Almenningur látinn sæta mjög ströngum reglum

Hún sagði viðhorfið hér á landi vera það að efsta lag samfélagsins sé hafið yfir lögin á meðan almenningur er látinn sæta mjög ströngum reglum. Sagði hún að almennur borgari þurfi að sæta rannsókn sé minnsti grunur um skattaundanskot eða bótasvik.

Þórhildur sagði einnig að það tíðkist hér á landi að æðstu menn í stjórnsýslunni séu nánast „verðlaunaðir“, eins og hún orðaði það, fyrir að brjóta reglur.

„Við erum að horfa á Braga Guðbrandsson, forstjóra Barnaverndarstofu, hann er búinn að sitja undir ítrekuðum kvörtunum frá barnaverndarnefndum sem eru að vinna með honum um ófagleg vinnubrögð, um óeðlileg afskipti, mjög vandræðaleg og erfið mál fyrir hann. Og honum er verðlaunað fyrir það með því að senda hann til barnaverndarnefndar Sameinuðu þjóðanna og Ísland ætlar í kosningabaráttu fyrir þennan mann til að taka þátt í barnaréttarstarfi Sameinuðu þjóðanna. Sem ég kalla bara verðlaun fyrir vonda hegðun og á sama tíma að losa hann úr þessu vandamáli. Við sjáum það bara endurtekið að ef einhver brot eiga sér stað þá eru engar afleiðingar fyrir æðstu lög samfélagsins og það gildir ekki um hina og þetta finnst mér vera stærsta vandamálið,“ sagði Þórhildur Sunna.


Tengdar fréttir

Siðanefnd Alþingis aldrei kölluð til

Siðanefnd Alþingis hefur ekki verið kölluð saman vegna aksturs þingmanna. Tölur frá Alþingi sýna að þingið hefði sparað milljónir ef farið hefði verið að reglum og tilmælum þingsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×