Enski boltinn

Pochettino: Þeir gerðu þetta erfitt

Dagur Lárusson skrifar
Mauricio Pochettino
Mauricio Pochettino vísir/getty
Mauricio Pochettino var ánægður með spilamennsku sinna manna eftir 1-0 sigur á Crystal Palace í dag en Harry Kane skoraði eina mark leiksins á 88. mínútu.

Sigurinn kom Tottenham upp í 4. sætið í deildinni en Pochettino sagði að liðið sitt hefði verið með yfirhöndina allan leikinn.

„Þetta voru erfiðar aðstæður sem við vorum að spila í þar sem Palace varðist svo aftarlega,“ sagði Poch.

„Þeir reyndu að gera þetta erfitt fyrir okkur og aðstæðurnar á vellinum sjálfum voru auðvitað ekki nægilega góðar en við náðum samt að skapa okkur einhver færi.“

„Ég er svo ánægður. Þrjú stig, flott staða í deildinni og við munum halda baráttunni áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×