Enski boltinn

Wenger: Þetta var rangstaða

Dagur Lárusson skrifar
Úr leiknum í dag
Úr leiknum í dag vísir/getty
Arsene Wenger var ósáttur eftir tap sinna manna gegn Manchester City í úrslitum deildarbikarsins í dag en City var sterkari aðilinn allan leikinn.

„Við áttum fyrsta góða færi leiksins en við náðum ekki að skora úr því, en við virkilega áttum að skora úr því,“ sagði Wenger.

„Eftir þetta færi gerðum við stór mistök í fyrsta markinu þeirra. Fyrir utan þetta mark þá náðu þeir ekki að valda okkur of miklum usla.“

„Annað markið gerði útum leikinn en fyrir mér var það 100% rangstaða.“

„Við greinum alla leiki út í gegn og við sjáum að í þessum leik þá vorum við ekki að gefa þeim mikið af færum, en þau færi sem við gáfum þeim voru stór færi. Fyrir utan varnarleikinn þá sköpuðu við okkur ekki nógu mikið af færum.“

Arsene Wenger fær tækifæri til þess að hefna úrslitanna í dag en liðin mætast aftur næstkomandi fimmtudag í deildinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×