Körfubolti

Helena stigahæst í sigri Hauka

Dagur Lárusson skrifar
Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir vísir/getty
Helena Sverrisdóttir skoraði 21 stig í öruggum sigri Hauka á Skallagrím í Dominos deild kvenna í kvöld.

Það var jafnræði með liðunum til að byrja með og var staðan jöfn eftir 1. leikhluta. Eftir það fóru Haukar hægt og rólega að taka forystuna og var staðan 37-33 fyrir Hauka í hálfleik.

Í seinni hálfleinum héldu Haukarkonur áfram að auka forystu sína með Helenu í broddi fylkingar og unnu að lokum sigur 80-66.

Helena Sverrisdóttir var stigahæst í liði Hauka með 21 stig á meðan Carmen Tyson-Thomas var stigahæst fyrir Skallagrím með 30 stig.

Með sigrinum eru Haukakonur búnar að jafna Valskonur að stigum á toppi deildarinnar og því er titilbaráttan ennþá í fullum gangi en bæði lið eru með 30 stig.

 

Skallagrímur: Carmen Tyson-Thomas 30/11 fráköst/5 stolnir, Sigrún Sjöfn  Ámundadóttir 13/8 fráköst/5 stoðsendingar, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 8/5 fráköst, Árnína Lena Rúnarsdóttir 3, Guðrún Ósk Ámundadóttir 3, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 3, Bríet Lilja Sigurðardóttir 2, Arna Hrönn Ámundadóttir 2, Jeanne Lois Figueroa Sicat 2.

Haukar: Helena Sverrisdóttir 21/10 fráköst, Þóra Kristín Jónsdóttir 15/6 fráköst, Whitney Michelle Frazier 10/7 fráköst/13 stoðsendingar/5 varin skot, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 9, Anna Lóa Óskarsdóttir 8, Rósa Björk Pétursdóttir 8/6 fráköst, Sigrún Björg Ólafsdóttir 5/4 fráköst, Þórdís Jóna Kristjánsdóttir 4.

 



 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×