Fótbolti

Mbappe og Cavani skoruðu í sigri PSG

Dagur Lárusson skrifar
Edison Cavani
Edison Cavani vísir/getty
Kylian Mbappe og Edison Cavani skoraðu báðir í öruggum sigri PSG á Marseille í kvöld en leikurinn fór 3-0.

Kylian Mbappe skoraði strax á 10. mínútu og kom sínum mönnum yfir. Leikmaður Marseille, Rolando, varð síðan fyrir því óláni á 27. mínútu að skora sjálfsmark og var staðan 2-0 í hálfleik.

PSG hélt uppteknum hætti í seinni hálfleiknum og hélt áfram að sækja og skapa sér færi. Edison Cavani skoraði úr einum að þeim færum á 55. mínútu leiksins og gerðu endanlega út um leikinn.

Eftir leikinn er PSG með 71 stig og er fjórtán stigum á undan Mónakó sem er í 2. sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×