Erlent

Fyrirtæki Weinstein gjaldþrota

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Harvey Weinstein komst upp með að áreita og beita konur kynferðislegu ofbeldi um áratugaskeið óáreittur.
Harvey Weinstein komst upp með að áreita og beita konur kynferðislegu ofbeldi um áratugaskeið óáreittur. Vísir/AFP

Framleiðslufyrirtækið The Weinstein Company sem stofnað var af Harvey Weinstein, mun sækjast eftir gjaldþrotaskiptum eftir að viðræður við nýja fjárfesta gengu ekki upp.



Viðræðunum var slitið fyrir tveimur vikum síðan eftir að saksóknari New York ríkis lagði fram kæru gegn fyrirtækinu.



„The Weinstein Company hefur verið í söluviðræðum í von um að varðveita eignir þess og störf,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn fyrirtækisins.



Þar sagði einnig að gjaldþrotaferli væri eini raunhæfi kosturinn til að hámarka verðgildi þess.



Weinstein hefur verið sakaður um kynferðisofbeldi og áreitni í garð fjölda kvenna síðustu misseri, þar á meðal þekktra leikkvenna. Eins hefur verið greint frá því hvernig hann reyndi að koma í veg fyrir að ásakanirnar yrðu gerðar opinberar í gegnum tíðina.



Rúmlega fimmtíu konur hafa sakað hann um kynferðislegt ofbeldi eða áreitni.



Í kæru saksóknarans segir að ýmsir hátt settir starfsmenn fyrirtækisins hafi, þrátt fyrir ýmis sönnunargögn, ekki brugðist við ofbeldi gegn starfsmönnum þess. Meðal þeirra sem sagður er hafa litið framhjá ofbeldinu er Robert Weinstein, bróðir Harvey.


Tengdar fréttir

New York ríki kærir fyrirtæki Weinstein

Weinstein hefur verið sakaður um kynferðisofbeldi og áreitni í garð fjölda kvenna síðustu misseri, þar á meðal þekktra leikkvenna.

Framleiðandi sakar Harvey Weinstein um líkamsárás

Svo ósáttur var Weinstein við að útgáfa af kvikmynd um Marilyn Monroe sem hann vildi breyta fengi góðar viðtökur að hann hélt meðframleiðanda sínum föstum og hótaði honum öllu illu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×