Lífið

Arndís slær í gegn í Norske Talenter: „Alltaf verið að læra á hljóðfæri eða verið í söng“

Arndís flutti lagið Brand New Key með Melanie Safka.
Arndís flutti lagið Brand New Key með Melanie Safka.
„Norske Talenter er norsk útgáfa af America´s Got Talent og það hefur gengið mjög vel,“ segir hin 17 ára Arndís Rán Snæþórsdóttir, sem stendur sig mjög vel í norska raunveruleikaþættinum Norske Talenter um þessar mundir og er hún komin áfram eftir fyrstu áheyrnaprufuna.

Þar flutti hún lagið Brand New Key með Melanie Safka.

„Næsta umferð heitir Dommerutvelgelse, þá sýna allir atriðið sitt og svo velja dómararnir hverjir komast áfram í undanúrslit.“

Arndís segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á tónlist.

„Ég var sett í kór þegar ég var sex ára og hef alltaf verið að læra á hljóðfæri eða verið í söng síðan þá,“ segir Arndís sem flutti til Noregs fyrir sex árum.

Hér að neðan má sjá brot af flutningi Arndísar í fyrstu áheyrnaprufunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×