Sport

Tonga-maðurinn stal senunni í síðasta skiptið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Skíðadrottningin Lindsey Vonn hló bara að bera Tonga-manninum í kuldanum.
Skíðadrottningin Lindsey Vonn hló bara að bera Tonga-manninum í kuldanum. vísir/afp
Tonga-maðurinn Pita Taufatofua kann þá list vel að stela senunni og koma sér í heimsfréttirnar. Hann gerði það í síðasta sinn á Ólympíuleikum í gær.

Á lokahátíð Vetrarólympíuleikanna í PyeongChang mætti Taufatofua að sjálfsögðu ber að ofan og makaður í olíu. Annað hefði einfaldlega komið á óvart.

Hann var búinn að stela senunni á setningarhátíð leikanna sem og setningarhátíðinni í Ríó árið 2016. Hans síðasta tækifæri á ÓL var líklega í gær og hann greip það að sjálfsögðu.

Olíuborinn og flottur var hann eftirlæti allra og allir vildu mynd af sér með Íslandsvininum sem tryggði sig inn á leikana á elleftu stundu er hann tók þátt á skíðagöngumóti á Ísafirði.

Pita er hér meðal annars með Lindsey Vonn og Thomas Bach, forseta alþjóða ólympíunefndarinnar.vísir/afp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×