Innlent

Árs fangelsi fyrir kynlíf með barni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Maðurinn og stúlkan kynntust í gegnum Snapchat.
Maðurinn og stúlkan kynntust í gegnum Snapchat. Vísir/Getty
Rúmlega tvítugur karlmaður var fyrir viku dæmdur í tólf mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að stunda kynlíf með fjórtán ára stúlku. Maðurinn var átján ára þegar brotið átti sér stað.

Í janúar 2016 leitaði móðir brotaþola á lögreglustöð þar sem dóttir hennar hafði orðið fyrir miklu áreiti af hálfu hins sakfellda og kærustu hans. Rannsókn málsins hófst í kjölfarið. Hinn sakfelldi neitaði sök. Hann sagði að hann og stúlkan hefðu kynnst á Snapchat á vormánuðum 2015.

Þau hefðu „náð vel saman og verið ákveðin í því að vilja sofa saman“. Hann sagði að hún hefði sagt honum að hún væri fædd árið 2000. Hins vegar átti hún afmæli síðla árs og var því ekki orðin fimmtán ára þegar samneyti þeirra átti sér stað.

Sagði hinn sakfelldi að hann hefði aldrei sofið hjá stelpunni hefði hann vitað aldur hennar. Brotaþoli bar því aftur á móti við að hún hefði sagt ákærða að hún væri aðeins fjórtán ára áður en af kynlífi varð. Í niðurstöðu dómsins segir að hinum sakfellda hefði mátt vera ljóst að stúlkan væri annaðhvort fjórtán eða fimmtán ára. Hann hefði hins vegar ekki gert tilraun til að finna út fæðingardag hennar. Var hann því sakfelldur.

Refsing mannsins er bundin almennu tveggja ára skilorði. Þá er honum gert að greiða stúlkunni 700 þúsund krónur í miskabætur og laun verjanda síns og réttargæslumanns stúlkunnar, alls rúma 1,1 milljón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×