Innlent

Laganna menn á harðahlaupum undan Jóni Steinari

Jakob Bjarnar skrifar
Hvorki lögmenn né dómarar þekkjast boð laganema um að koma og mæta Jóni Steinari á opnum fundi. Ekki Reimar, ekki Skúli, ekki Karl, ekki Benedikt og ekki Ingibjörg.
Hvorki lögmenn né dómarar þekkjast boð laganema um að koma og mæta Jóni Steinari á opnum fundi. Ekki Reimar, ekki Skúli, ekki Karl, ekki Benedikt og ekki Ingibjörg.
Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, gengst fyrir opnum fundi í HR í hádeginu á morgun. Til stendur að ræða efni bókar Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara og lögmanns; Með lognið í fangið. En nú bregður svo við að enginn þeirra sem Páll Magnús Pálsson, formaður málfundafélags Lögréttu, hefur reynt að fá til að flytja erindi á þeim fundi vill þekkjast boðið.

„Ég hef haft samband við Karl Axelsson, Benedikt Bogason, Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, Skúla Magnússon og Reimar Pétursson, sem hefur eins og þú veist gagnrýnt bókina. Enginn af þessum einstaklingum hafði áhuga á að mæta á fundinn,“ segir Páll Magnús í samtali við Vísi.

Bara þvert nei

Páll Magnús segir að enginn nefndra hafi gefið upp neina ástæðu fyrir því hvers vegna þau gætu ekki eða vildu ekki mæta. „Bara þvert nei.“

Í boði Lögréttu segir að um sé að ræða málfund um lögfræðileg málefni líðandi stundar.

„Gagnrýni Jóns Steinars Gunnlaugssonar á Hæstarétt sem kemur fram í nýútgefinni bók hans, „Með lognið í fangið; Um afglöp Hæstaréttar eftir hrun“, hefur vakið mikla athygli laganema. Þá sérstaklega umfjöllun um óeðlileg afskipti Hæstaréttar af dómaraskipunum. Af þeirri ástæðu tel ég mikilvægt að einhver komi fram fyrir hönd dómara og svari þessari alvarlegu gagnrýni. Ég vil því bjóða þér að mæta á opinn fund í Háskólanum í Reykjavík, ásamt Jóni Steinari. Ef þú hefur áhuga á að mæta á slíkan fund verður tímasetning ákveðin eftir því sem ykkur Jóni hentar, en ég miða við að reyna að halda fundinn á allra næstu vikum. Ég yrði þakklátur ef þú gætir svarað þessu erindi sem fyrst,“ skrifar Páll Magnús kurteislega í boðsbréfi og sendir bestu kveðjur. En allt kemur fyrir ekki.

Páll Magnús, formaður málfundafélags Lögréttu, furðar sig á því að enginn vilji mæta Jóni Steinari um efni nýlegrar bókar hans þar sem finna má harða gagnrýni á dómsstóla.
En, hvað kemur til að þið viljið taka þetta efni til umfjöllunar á fundi Lögréttu?

„Eftir að hafa lesið bók Jóns taldi ég efni hennar eiga brýnt erindi við laganema. Einnig finnst mér einkennileg þögnin sem hefur ríkt í fjölmiðlum um þá alvarlegu og rökstuddu gagnrýni sem Jón hefur sett fram,“ segir Páll.

Blaðamaður Vísis verður reyndar að fá að halda því til haga að Vísir hefur fjallað ítarlega um bókina og vendingar henni tengdar. Eiginlega farið að bera í bakkafullan lækinn með það.

„Já, en manni finnst einhvern veginn að svona alvarleg gagnrýni fyrrverandi hæstaréttardómara ætti að vekja aðeins meiri athygli og þá kannski að farið sé nánar í hlutina efnislega, sem hann ræðir í bókinni,“ segir laganeminn Páll Magnús og gefur ekkert eftir með það.

Að vilja þegja gagnrýnina í hel

Staðan er því sú að fundurinn verður þannig að formaðurinn býður gesti velkomna og Jón Steinar tekur svo við, án andmæla. En, viltu þá meina að Jón Steinar hafi kerfisbundið verið beittur þöggun af þeim sem ættu að láta sig málið varða?

„Ég veit ekki alveg hvort ég myndi taka svo afdráttarlaust til orða. En mér hefur fundist ríkja svolítið áhugaleysi á þeirri gagnrýni sem Jón hefur sett fram. Og hann talar auðvitað mikið um þetta áhugaleysi í bókinni. Og ekki bara frá fjölmiðlum heldur dómurum sem hafa ekki séð ástæðu til að svara þessari alvarlegu gagnrýni á þeirra störf.

Ef enginn svarar og leiðréttir tekur maður því sem Jón segir auðvitað sem sönnu. Eins og menn haldi að þeir geti þagað gagnrýnina í hel.“

En, hvað heldur þú og þá jafnvel laganemar, að valdi þessari þögn um svo alvarlega gagnrýni og hann setur fram? Og, vel að merkja, þessa háværu þögn má greina bæði hjá dómarafélaginu sem og lögmannafélaginu.

„Það sem mér dettur einna helst í hug er að menn treysti sér hreinlega ekki til að færa málefnalegar röksemdir fyrir svörum sínum. Þá vegna þess að eitthvað er til í gagnrýni Jóns. Annað getur maður ekki haldið á meðan enginn svarar eða gerir tilraun til að leiðrétta það sem kann að vera rangt.“



Að lögmenn vilji eiga gott veður hjá dómurum

Og þá að lögmenn vilja hugsanlega eiga gott veður hjá dómurum og veigra sér því við að taka undir með Jóni?

„Þegar Jón óskaði eftir því við lögmannafélagið að haldinn yrði opinn fundur þar sem menn gætu gert grein fyrir því sem þeir teldu rangt í bókinni, var honum svarað eitthvað í þá átt að það væri dýrt að halda slíka fundi og Lögmannafélagið hefði bara ekki kost á því. Nú er ég að halda opinn fund og hef boðið fjölmörgum einstaklingum að koma, meðal annars frá lögmannafélaginu, en enginn hefur áhuga á að koma.

Þannig virðast margir vera tilbúnir til að gagnrýna bókina á lokuðum fundum og halda því fram að í henni sé farið með rangt mál, en veigra sér samt við því að færa rök fyrir slíkum fullyrðingum á opinberum vettvangi.“

Þannig að menn eru á hlaupum undan Jóni Steinari?

„Svo virðist vera,“ segir Páll Magnús formaður málfundafélags Lögréttu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×