Körfubolti

NBA: Vinirnir LeBron James og Dwyane Wade frábærir í sigrum sinna liða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James og Dwyane Wade.
LeBron James og Dwyane Wade. Vísir/Getty
LeBron James og Dwyane Wade eru miklir vinir og þeir voru liðsfélagar í vetur eða þar til að Cleveland Cavaliers skipti Wade til Miami Heat á dögunum. Þeir félagar voru báðir magnaðir í sigurleikjum sinna liða í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

LeBron James var með þrennu í 129-123 sigri Cleveland Cavaliers á Brooklyn Nets. James skoraði 31 stig en var einnig með 12 fráköst og 11 stoðsendingar. Þetta var tólfta þrenna hans á tímabilinu og sú 67. á ferlinum.





James varð í nótt einnig fyrsti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar sem nær að skora 30 þúsund stig, taka 8 þúsund fráköst og gefa 8 þúsund stoðsendingar. Stoðsending númer átta þúsund kom í leiknum á móti Brooklyn Nets.

Leikurinn var mjög spennandi allt til loka. Karfa Rodney Hood og víti að auki kom Cleveland yfir í 123-121 þegar 40 sekúndur voru eftir og þeir LeBron James og George Hill kláruðu síðan leikinn með því að hitta úr tveimur vítaskotum hvor á síðustu sextán sekúndunum.

Dwyane Wade skoraði 27 stig, það mesta sem hann hefur gert á tímabilinu, þegar Miami Heat vann 102-101 endurkomusigur á Philadelphia 76ers. Wade skoraði sigurkörfuna 5,9 sekúndum fyrir leikslok en það var eina forysta Miami í fjórða leikhlutanum.



 

Philadelphia átti engin svör við Wade í lokin en hann skoraði fimmtán af síðustu sautján stigum Miami liðsins í leiknum. „Það er eitthvað við Dwyane Wade þegar hann klæðir sig í Miami Heat treyjuna og spilar fyrir framan þessa stuðnningsmenn,“ sagði Erik Spoelstra, þjálfari Miami. „D-Wade var magnaður í lokin,“ sagði JJ Redick, leikmaður Philadelphia.

Goran Dragic skoraði 21 stig, Tyler Johnson var með 16 stig og Hassan Whiteside skoraði 15 stig og tók 11 fráköst. Joel Embiid var með 23 stig fyrir Philadelphia og Dario Saric bætti við 21 stigi.

Úrslitin úr leikjum NBA í nótt:

Denver Nuggets - Los Angeles Clippers    120-122    

Portland Trail Blazers - Sacramento Kings    116-99    

Milwaukee Bucks - Washington Wizards    104-107    

Miami Heat - Philadelphia 76ers    102-101    

Charlotte Hornets - Chicago Bulls    118-103    

Cleveland Cavaliers - Brooklyn Nets    129-123

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×