Lífið

Jennifer Lawrence staupaði og sparkaði af sér skónum í viðtali við Colbert

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lawrence fór á kostum.
Lawrence fór á kostum.
Leikkonan Jennifer Lawrence er þekkt fyrir skrautalegan og skemmtilegan karakter og sýndi hún það í viðtali við Stephen Colbert á dögunum.

Lawrence var mætt til að kynna kvikmyndina Red Sparrow sem hún fer með aðalhlutverkið í. Viðtalið var heldur betur skemmtilegt og hefur vakið mikla athygli.

Sennilega helst fyrir þá staðreynd að leikkonan staupaði áfengi í þrígang í viðtalinu sem endaði með því að hún sparkaði af sér skónum þegar leið á.

Hér að neðan má sjá þetta skemmtilega viðtal.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×