Erlent

Valdeflandi að taka upp nektarsenu fyrir Red Sparrow

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Jennifer Lawrence hefur ákveðið að taka sér pásu frá leiklistinni.
Jennifer Lawrence hefur ákveðið að taka sér pásu frá leiklistinni. Vísir/Getty
Jennifer Lawrence segir að eldri menn með völd í kvikmyndabransanum hafi svo sannarlega komið illa fram við sig, þó að það hafi ekki verið jafn alvarlegt og brotin sem Harvey Weinstein er sakaður um. Nefndi hún dæmi þar sem menn snertu á henni fótleggina og hún hafi ekki fundist hún geta mótmælt.

Hakkari braut á Lawrence árið 2014 með því að birta nektarmyndir af henni. Lawrence segir að í mörg ár hafi hún verið óörugg þegar kom að nekt og líkama sínum. Að vera nakin í tökum fyrir kvikmyndina Red Sparrow hafi svo verið valdeflandi fyrir hana. Hún segir í viðtali við CNN að myndin komi á frábærum tímapunkti eftir #MeToo byltinguna.

„Þegar ég las handritið þá elskaði ég það svo mikið. Ég hugsaði að ef ég myndi ekki gera þetta... væri það næstum því eins og allt óöryggið og óttinn minn myndu vinna.“

Kvíðinn verri en raunveruleikinn

Í myndinni leikur Lawrence rússneska ballerínu sem verður njósnari eftir að hún meiðist. Í einu atriðinu er henni skipað að afklæða sig í þjálfunarbúðum ásamt fleiri konum.

„Kvíðinn fyrirfram var miklu verri en raunveruleikinn sjálfur. Ég hafði rúmt ár til að undirbúa mig andlega. Versti hlutinn var nóttin áður, ég svaf ekki neitt.“

Snemma á ferlinum var Lawrence mynduð nánast nakin umkringd grennri konum. Framleiðandi sagði henni svo að nota myndirnar sem hvatningu til þess að léttast. Þetta atvik minnir á umhverfið sem Lawrence var í þegar nektaratriðið var tekið upp fyrir Red Sparrow. Aðstæðurnar þar voru þó mjög afslappaðar og þægilegar.

„Allir voru svo faglegir og almennilegir. Mér leið fullkomlega vel,“ segir Lawrence um tökurnar. Hún upplifði þetta valeflandi og finnur enn þá tilfinningu.



Gerir heimildamynd

Myndin var tekin upp áður en #MeToo byltingin fór af stað en leikkonan segir að hún sé akkúrat myndin sem við þurfum núna.

„Hún opnar samtalið um munin á samþykki og ekki samþykki.“

Lawrence tilkynnti nýlega að hún ætlar að taka sér árshlé frá leiklist ætlar að gera heimildamynd um nýju kvennabyltingar eins og #MeToo, #timesup og um launajafnrétti kynjanna. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×