Körfubolti

Griffin tapaði gegn sínu gamla liði

Magnús Ellert Bjarnason skrifar
Griffin í leiknum gegn sínu gamla liði.
Griffin í leiknum gegn sínu gamla liði. Vísir / Getty
Blake Griffin og félagar hans í Detroit Pistons töpuðu á heimavelli í nótt gegn L.A. Clippers, 95-108. Var þetta fyrsti leikur Griffin gegn sína gamla liði, sem hann spilaði með í níu ár, eftir leikmannaskipti liðanna fyrir um tveim vikum síðan.

Griffin gekk niðurlútur að velli í leikslok og tók ekki í hendi sinna fyrrum liðsfélaga. Lauk hann leiknum með 19 stig en hann hitti einungis af 7 af 19 skotum sínum, þar af aðeins 1 af 7 þriggja stiga skotum sínum.

Fyrir leikinn hafði Pistons unnið fimm leiki í röð og var þetta fyrsti tapleikur liðsins síðan að Griffin gekk til liðs við liðið.

Boston Celtics tapaði óvænt á heimavelli í nótt gegn liði Indiana Pacers, 97-91, og datt þar með niður í 2. sæti austudeildarinnar, á eftir Toronto Raptors.

Victor Oladipo fór sem fyrr á kostum í liði Pacers, skoraði 35 stig og tók 10 fráköst. Pacers fékk Oladipo í skiptum fyrir Paul George fyrir tímabilið og hefur spilamennska hans farið langt fram úr væntingum bjartsýnustu manna. Mun hann spila í All-star leik NBA sem verður spilaður næstkomandi 18. febrúar.

Kyrie Irving var stigahæstur í liði Boston með 21 stig og var nálægt því að leiða lið sitt til frábærs endurkomusigurs. Boston hafði saxað á 26 stiga forskot Pacers í fjórða leikhluta en gestirnir voru sterkari á lokasprettinum og lönduðu sigrinum að endingu.

Lebron James var með 18 stoðsendingar í nótt, sem er nýtt persónulegt met, þegar að lið hans Cavaliers vann Atlanta Hawks auðveldlega, 123-107. 

Var þetta fyrsti leikur liðsins eftir miklar leikmannabreytingar sem áttu sér stað í vikunni, en nýju leikmenn liðsins voru í borgaralegum klæðum í stúkunni þar sem þeir eru ekki komnir með leikheimild.

Öll úrslit leikja næturinnar:

Detroit Pistons vs. L.A. Clippers: 95-108

Philadelphia 76'ers vs New Orleans: 100-82

Atlanta Hawks vs. Cleveland Cavaliers: 107-123

Boston Celtics vs. Indiana Pacers: 91-97

Houston Rockets vs. Denver Nuggets: 130-104

Miami Heat vs. Milwaukee Bucks: 91-85

Utah Jazz vs. Charlotte Hornets: 106-94

Chicago Bulls vs. Minnesota Timberwolves: 114-113

Sacramento Kings vs. Portland Trailblaizers: 100-118

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×