Innlent

Ætla að taka reglur um þingfararkostnað til skoðunar

Hersir Aron Ólafsson og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Ásmundur Friðriksson
Ásmundur Friðriksson Fréttablaðið/Pjetur

Til stendur að fylgja betur eftir hlýðni við reglur um þingfararkostnað, þannig að þeir þingmenn sem aka mest vegna vinnu sinnar nýti hagkvæmustu samgöngumáta hverju sinni. Þetta segir forseti Alþingis, en forsætisnefnd hyggst taka reglurnar til endurskoðunar.

Líkt og fram hefur komið fékk þingmaðurinn Ásmundur Friðriksson greiddar um 4,6 milljónir króna í aksturskostnað í fyrra fyrir um 47 þúsund ekna kílómetra. Ásmundur er þó langt frá því að vera eini þingmaðurinn sem innheimt hefur mikið fé vegna aksturs. Þannig fékk næsti maður á eftir Ásmundi um 3 og hálfa milljón og sá þriðji um þrjár komma eina, en greiðslur til þeirra 10 sem mest fengu námu um 29 milljónum króna. Í reglum um þingfararkaup er ekkert hámark sett á þann kostnað sem unnt er að innheimta fyrir akstur. Steingrímur J. Sigfússon er forseti Alþingis og formaður forsætisnefndar, sem setur reglurnar.

„En það er auðvitað eitt sem mætti velta fyrir sér hvort að það ætti að setja á þetta einhvert þak, einhver efri mörk. Bara svo þetta væri frekar hafið yfir gagnrýni. Það má reyndar segja að það sé kominn í þetta. Það má reyndar segja að á vissan hátt sé komin inn í þetta bremsa af því tagi því nú er krafist þess að þingmenn noti bílaleigubíla ef aksturinn fer yfir 15.000 kílómetra á ári.“

Segir hann einnig að verið sé að skerpa á þessum reglum núna. Steingrímur bendir á að greiddur aksturskostnaður hafi lækkað mikið undanfarin ár, en þannig fengu þeir 10 sem mest óku tæpar 60 milljónir greiddar árið 2013, en talan í fyrra var aðeins helmingur þess. Steingrímur segir þó að alltaf megi skoða leiðir til aukinnar hagræðingar.

„Án þess að ég vilji segja mikið á þessu stigi þá erum við að velta ýmsu fyrir okkur í þessu sambandi í forsætisnefnd.“

Greiddur kostnaður fyrir landsbyggðarþingmenn vegna ferðalaga og eftir atvikum búsetu utan heimilis leggst ofan á þingfararkaup þeirra sem í grunninn er um 1,1 milljón. Margir þingmenn fá þó auk þess ýmiss konar álag, meðal annars fyrir nefndarsetu og formennsku í flokkum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×