Viðskipti innlent

25 milljarða arður til hluthafa Arion banka

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Arðgreiðslan er háð þeim skilyrðum að Kaupskil ehf., dótturfélag kaupþings, hafi selt minnst tveggja prósenta hlut í Arion banka eigi síðar en 15. apríl næstkomandi.
Arðgreiðslan er háð þeim skilyrðum að Kaupskil ehf., dótturfélag kaupþings, hafi selt minnst tveggja prósenta hlut í Arion banka eigi síðar en 15. apríl næstkomandi. Vísir/Stefán
Á hluthafafundi Arion banka hf. sem fram fór í dag var ákveðið að greiða 25 milljarða króna í arð til hluthafa bankans.

Þá var ákveðið að taka upp í samþykktir bankans tímabundna heimild til handa stjórn bankans til að kaupa til baka hlutabréf sem útgefin eru í bankanum að heildarhámarki allt að tíu prósent af skráðum og fullgreiddum hlutum sem útgefnir hafa verið af Arion banka.

Arðgreiðslan er háð þeim skilyrðum að Kaupskil ehf., dótturfélag kaupþings, hafi selt minnst tveggja prósenta hlut í Arion banka eigi síðar en 15. apríl næstkomandi.

Í samræmi við langtímamarkmið bankans

Í tilkynningu Arion banka til Kauphallar segir að arðgreiðslan og kaup á eigin bréfum sé að fullu í samræmi við langtímamarkmið Arion banka um að minkna umfram eigið fé bankans. Að framkvæmdinin lokinin lækkar eiginfjárhlutfall bankans um ríflega 3% en er engu að síður vel umfram kröfur FME og það sem bankinn telur hæfilegt, að því er segir í tilkynningunni.

Greint var frá því í Fréttablaðinu í morgun að ekkert verði af kaupum íslenskra lífeyrissjóða á hlut í Arion banka fyrir útboð og skráningu bankans síðar á árinu.

Hafa allir sjóðirnir, en tólf þeirra höfðu samþykkt að fara í óskuldbindandi viðræður við Kaupþing um kaup á tæplega tíu prósenta hlut, tekið ákvörðun um að fjárfesta ekki í bankanum áður en ársuppgjör hans verður birt næstkomandi miðvikudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.


Tengdar fréttir

Leggja til 25 milljarða arðgreiðslu takist að selja hlut í Arion banka

Stjórn Arion banka leggur til að bankinn greiði 25 milljarða í arð til hluthafa bankans. Tillaga stjórnarinnar gerir þó ráð fyrir að arðgreiðslan sé háð því skilyrði að stærsti eigandi bankans hafi selt minnst tvö prósent eignar félagsins í bankanum fyrir 15. apríl.

Kaupa ekki í Arion banka fyrir útboð

Lífeyrissjóðir slitu viðræðum við Kaupþing í lok síðustu viku. Á annan tug lífeyrissjóða hafði áður lýst yfir áhuga á að kaupa samanlagt tæplega tíu prósenta hlut í Arion banka.

Lífeyrissjóðir hafa áhuga á að kaupa um tíu prósent í Arion

Tólf lífeyrissjóðir samþykktu að fara í viðræður um kaup í Arion banka. Lýstu yfir áhuga á að kaupa tæplega tíu prósent. Einnig viðræður við tryggingafélög og verðbréfasjóði. Kaupréttur að hlut ríkisins verður nýttur gangi áformin eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×