Innlent

Hverfa af vinnumarkaði vegna örorku

Höskuldur Kári Schram skrifar
Hlutfall þeirra sem hafa horfið af vinnumarkaði vegna örorku eða annarra veikinda er mun hærra hér á landi en á Norðurlöndum. Formaður Öryrkjabandalagsins segir að fólk með skerta starfsgetu eigi í miklum erfiðleikum með að fá vinnu.

Atvinnulíf á Norðurlöndum er meðal annars til umfjöllunar í skýrslu norrænu ráðherranefndarinnar sem var birt í síðustu viku.

Staðan hér á landi er almennt góð í norrænum samanburði. Atvinnuþátttaka með mesta móti og atvinnuleysi lítið.

Ísland sker sig þó úr þegar kemur að ástæðu þess að fólk hefur horfið af vinnumarkaði.Í rúmlega áttatíu prósent tilvika er um örorku eða veikindi að ræða sem er mun hærra hlutfall en annars staðar á Norðurlöndum. Rúmlega tuttugu prósentustigum fyrir ofan Noreg og nærri fjórfalt miðað við Finnland þar sem hlutfallið er lægst.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands segir afar erfitt fyrir fólk að komast aftur inn á vinnumarkaðinn ef það lendir í örorku.

„Öryrkinn hefur engin tækifæri til þess að afla sér tekna. Það borgar sig ekkert fyrir hann að fara út á vinnumarkað hafandi litla starfsgetu. Hlutastörf í dag fyrir fólk með litla starfsgetu eru ill fáanleg og ef þú kemst á vinnumarkaðinn þá byrjar ballið þannig að þú ert skertur krónu á móti krónu,“ segir Þuríður.

Fólk sé þannig fast í vítahring skerðinga þó það hafi getu og vilja til að starfa á vinnumarkaði. 

„Um síðustu áramót voru yfir 400 manns með skerta starfsorku í virkri atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun. Það virðist eiga litla möguleika að fá vinnu,“ segir Þuríður




Fleiri fréttir

Sjá meira


×