Innlent

Lars og sænskir prinsar í hópi 48 sem fengu fálkaorðu frá Guðna

Atli Ísleifsson skrifar
Daníel prins, Lars og Karl Filippus.
Daníel prins, Lars og Karl Filippus. Vísir/AFP
Lars Lagerbäck, fyrrverandi þjálfari Íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, og sænsku prinsarnir Karl Filippus og Daníel, eiginmaður Viktoríu krónprinsesseu, voru í hópi 48 sem fengu afhenta fálkaorðu frá Guðna Th. Jóhannessyni forseta í opinberri heimsókn hans til Svíþjóðar í síðasta mánuði.

Þetta kemur fram á heimasíðu forsetaembættisins, en venja er að orður séu afhentar í tengslum við opinberar heimsóknir þjóðhögðingja.

Meðal annarra sem fengu orður voru Ágúst Einarsson prestur, Urban Ahlin, forseti sænska þingsins, Peter Eriksson, ráðherra húsnæðismála í Svíþjóð, Anna Hamilton, hirðstjóri drottningar, Håkan Juholt, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, Ingibjörg Helgadóttir hjúkrunarfræðingur og Nanna Hermannsson, fyrrverandi borgarminjavörður.

Sjá má listann í heild sinni að neðan.

  • Ágúst Einarsson prestur, Riddarakross
  • Ahlin, Urban, forseti þjóðþingsins í Svíþjóð, Stórkross
  • Braunschweig, Frieder prófessor, Riddarakross
  • Bredelius, Harriet kammerfrú, Stórriddarakross
  • Brodén, Erik lögregluvarðstjóri Riddarakross
  • Carl Philip prins, Stórkross
  • Carlsson, Claes staðarhaldari, Riddarakross
  • Dalman, Margareta Nisser hirðsafnastjóri Stórriddarakross með stjörnu
  • Daniel krónprins, Stórkross
  • Eliasson, Ingemar orðuritari Stórkross
  • Emitslöf, Buster Mirow deildarstjóri Riddarakross
  • Enander, Göran lénshöfðingi, Stórriddarakross með stjörnu
  • Ericsson, Leif skjaldamerkjamálari, Riddarakross
  • Eriksson, Peter ráðherra, Stórkross
  • Gudmundson, Peter kammerherra, Stórriddarakross
  • Gudmundsson, Amanda deildarstjóri, Riddarakross
  • Hådell, Svante prótókollstjóri Stokkhólmsborgar, Stórriddarakross
  • Häll, Richard Beck-Friis liðsforingi, Stórriddarakross
  • Hallberg, Kristjan þýðandi, Riddarakross
  • Hamilton, Anna hirðstjóri drottningar, Stórkross
  • Hansson, Gunnar D., þýðandi og skáld, Riddarakross
  • Henriksson, Mathias aðstoðarliðsforingi, Riddarakross
  • Högberg, Peter Stórriddarakross
  • Hovgard, Åke framreiðslumeistari, Stórriddarakross
  • Ingibjörg Helgadóttir hjúkrunarfræðingur, Riddarakross
  • Johansson, Karl G. prófessor og þýðandi, Riddarakross
  • Johansson, Karolin A. hirðmarskálkur, Stórriddarakross
  • Juholt, Håkan sendiherra, Stórkross
  • Kampmann, Erik, fasteignastjóri hallarinnar, Riddarakross
  • Lagerbäck, Lars landsliðsþjálfari, Riddarakross
  • Larsson, Steffan hallarstjóri, Stórriddarakross með stjörnu
  • Lilliehöök, Anna skrifstofustjóri, Riddarakross
  • Lindbergh, Boel aðstoðarskrifstofustjóri, Riddarakross
  • Lindblad, Peter prófessor, Riddarakross
  • Lindman, Jan fjármálastjóri, Stórriddarakross með stjörnu
  • Lindqvist, Svante prófessor og hirðstjóri, Stórkross
  • Martin, Lena aðstoðarforingi, Stórriddarakross
  • Molander, Johan sendiherra og aðalsiðameistari, Stórriddarakross með stjörnu
  • Montan, Göran fyrrverandi þingmaður, Riddarakross
  • Nanna Hermannsson, fyrrverandi borgarminjavörður, Riddarakross
  • Nelson, Adam aðstoðarforingi, Stórriddarakross
  • Nilsson, Mats, hershöfðingi og yfirhirðmarskálkur, Stórkross
  • Olsen, Johan skrifstofustjóri, Riddarakross
  • Pettersson, Håkan, yfirmaður lífvarða konungs, Stórriddarakross með stjörnu
  • Ralp, Bo, prófessor Riddarakross
  • Röding, Karin, aðstoðarráðherra, Stórriddarakross
  • Rosén, Steffan, prófessor og varaorðuritari, Stórriddarakross með stjörnu
  • Söderberg, Rebecca, varaprótókollstjóri, Riddarakross



Fleiri fréttir

Sjá meira


×