Fótbolti

Brozovic sektaður þar sem hann klappaði fyrir áhorfendum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þessir stælar í Brozovic munu kosta hann skildinginn.
Þessir stælar í Brozovic munu kosta hann skildinginn. vísir/epa
Hvorki þjálfari Inter né stjórn félagsins hafði húmor fyrir hegðun Króatans Marcelo Brozovic í leik liðsins um helgina.

Hann var arfaslakur í leiknum gegn Bologna og þegar honum var skipt af velli þá bauluðu stuðningsmenn Inter á hann. Brozovic svaraði fyrir sig með því að klappa kaldhæðnislega fyrir stuðningsmönnunum.

Hinir kínversku eigendur félagsins leggja mikið upp úr því að leikmenn liðsins séu kurteisir og alltaf til fyrirmyndar. Félagið ætlar því að biðjast opinberlega afsökunar á stælunum í Brozovic og sekta hann þess utan fyrir klappið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×