Innlent

Skjálftahrina nálægt Selfossi

Atli Ísleifsson skrifar
Stærsti skjálftinn fannst á Selfossi. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Stærsti skjálftinn fannst á Selfossi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/eyþór
Lítil jarðskjálftahrina byrjaði í morgun klukkan 7:48 skammt frá Selfossi. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að hrinan hafi verið um sex austnorðaustur af Selfossi.

Stærstu skjálftarnir urðu klukkan 8:03, 2,1 að stærð, og svo annar, 2,8 að stærð klukkan 8:10. Flestir voru skjálftarnir hins vegar undir 0,6 að stærð.

Nokkrir smáskjálftar hafa áfram verið að mælast í jarðskjálftakerfinu, en stærsti skjálftinn fannst á Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×