Erlent

Hin­rik prins ver síðustu dögunum í höllinni

Atli Ísleifsson skrifar
Heilsu Hinriks prins hefur hrakað mikið að undanförnu.
Heilsu Hinriks prins hefur hrakað mikið að undanförnu. Vísir/AFP

Hinrik prins, eiginmaður Margrétar Þórhildar Danadrottningar, hefur verið fluttur af Rigshospitalet til Fredensborgarhallar á Sjálandi þar sem hann hefur óskað eftir að að verja síðustu dögum ævi sinnar.



Þetta kemur fram í tilkynningu  frá dönsku konungsfjölskyldunni. Heilsu Hinriks hefur hrakað mikið síðustu vikurnar og er ástand hann enn sagt alvarlegt.



Hinrik var lagður inn á ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn í lok janúarmánaðar þar sem hinn 83 ára gamli prins hefur verið undir smásjá lækna. Í tilkynningu frá höllinni, sem send var út 2. febrúar síðastliðinn, var greint frá góðkynja æxli sem fundist hafði í vinstra lunga prinsins.



Hann hafi undanfarna daga sætt meðferð til að sporna við lungasjúkdómum.



Þá var greint frá því síðasta sumar að hann væri með heilabilun.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×