Innlent

Neyðarkall frá Spáni til skoðunar í ráðuneytinu

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Sunna er enn lömuð fyrir neðan brjóstkassa og hefur enga tilfinningu í fótum.
Sunna er enn lömuð fyrir neðan brjóstkassa og hefur enga tilfinningu í fótum. Unnur Birgisdóttir
„Við erum að leita allra leiða og skoða hvort hægt sé að greiða fyrir því að hún fái betri umönnun og að hún fái vegabréfið sitt,“ segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, um hjálparbeiðni Sunnu Elviru Þorkelsdóttur til íslenskra stjórnvalda.

Í ítarlegu viðtali við Sunnu, á vef Fréttablaðsins, frettabladid.is, í gærkvöld, kom fram að hjálparbeiðni hennar hefur legið á borði íslenskra stjórnvalda frá því í síðustu viku. Lögmaður Sunnu vill freista þess að fá farbanni aflétt gegn því að íslensk stjórnvöld gangi í ábyrgð fyrir hana.

„Við erum búin að leggja fram erindi til íslenska ríkisins þess efnis að ég fái að fara fara heim á þessari undanþágu en þeir ábyrgist að ég verði til taks vilji spænska lögreglan yfirheyra mig frekar eða er með einhverjar frekari spurningar,“ segir Sunna. Beiðnin hafi verið send utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra og sendiherra Íslands fyrir Spán.

„Þetta var gert í síðustu viku og ég bjóst við að það yrði bara undirritað strax því ég er ekki að fara að flýja neitt sko.“

Aðspurð segist Sunna ekki hafa fengið neinar skýringar á því af hverju ráðuneytið hefur dregið lappirnar í þessu. „Og ég er satt að segja bara vonsvikin. Því fyrir mér lítur þetta út sem mín eina von eins og er til að komast heim sé að ríkið aðstoði mig í þessu.“



Atburðir undanfarinna vikna hafa fengið mjög á Sunnu, ekki bara líkamlega, en hún hefur enga tilfinningu í neðri hluta líkamans og er lömuð fyrir neðan brjóst, heldur hafa atburðirnir haft mikil áhrif á hana andlega, enda hvert áfallið rekið annað.

Sunna segist enga áfallahjálp hafa fengið; hvorki sálfræðiaðstoð né aðra andlega hjálp og lýsir í viðtalinu þegar hún fékk taugaáfall á spítalanum á mánudag.

Eiginmaður Sunnu Elviru situr í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að fíkniefnainnflutningi. Aðspurð segir Sunna erfitt að vita af honum í varðhaldi og fá engin svör. „Mig vantar svo að fá svör, hvað gekk eiginlega á, hvað var í gangi? Og hvað er hann búinn að koma mér í?“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×