Innlent

Guðni segir að hugur hans sé hjá Margréti Þór­hildi og konungs­fjöl­skyldunni

Heimir Már Pétursson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson forseti var með Hinrik prins sér á hægri hönd í veislu Margrétar Þórhildar og Hinriks til heiðurs íslensku forsetahjónanna í Kaupmannahöfn í janúar á síðasta ári.
Guðni Th. Jóhannesson forseti var með Hinrik prins sér á hægri hönd í veislu Margrétar Þórhildar og Hinriks til heiðurs íslensku forsetahjónanna í Kaupmannahöfn í janúar á síðasta ári. Vísir/AFP

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir að hugur hans og Elizu Reid forsetafrúar sé hjá Margréti Þórhildi Danadrottningu og fjölskyldu hennar nú þegar Hinrik prins hafi fallið frá.



Guðni segir að það hafi verið ánægjulegt að hitta prinsinn í fyrstu opinberu heimsókn hans og Elizu til Danmerkur fyrir rúmu ári. Hinrik prins tók að fullu þátt í móttöku forsetahjónanna með Margréti Þórhildi drottningu.



Hinrik heilsaði forsetahjónunum innilega á tröppum Amalienborgar og mætti einnig í veislu forsetans til heiðurs drottningu þótt hann hafi þá formlega látið af öllum skyldustörfum fyrir ári.



Hugur forsetahjónanna hjá drottningu

Guðni segir að Hinrik hafi verið góður gestgjafi líkt og drottningin. „Hugur okkar er hjá Margréti Danadrottningu og konungsfjölskyldunni en það rifjast upp að Hinrik prins var skemmtilegur sessunautur, talaði frönsku við Elizu og fínustu dönsku við mig og lék á als oddi.“



Útför Hinriks fer fram frá kirkju Kristjánsborgarhallar hinn 20. febrúar og er fastlega búist við að forsetahjónin sæki útförina þótt gefið hafi verið út að hún verði látlaus. Lík hans verður brennt og helmingi öskunnar dreift í dönskum vötnum og hinum helmingnum komið fyrir í einkagarði konungsfjölskyldunnar við Fredensborgarhöll.



Góðar minningar

Síðasta sumar greindi prinsinn frá því að hann vildi ekki hvíla við hlið eiginkonu sinnar í dómkirkjunni í Hróarskeldu að þeim gengnum líkt og gert hafði verið ráð fyrir.



Í tilkynningunni frá konungshöllinni sem send var út síðasta sumar kom fram að prinsinn hefði þá greint drottningunni frá hugmyndum sínum fyrir nokkru og að hún væri þeim samþykk. Guðni forseti segir Hinrik hafa verið líflegan og haft gaman að því að tala um samtímastjórnmál og vín frá frönskum vínekrum. „Auðvitað var hann orðinn aldraður maður og þetta var í fyrsta og eina skipti sem ég hitti hann en um hann á ég góðar minningar,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar.



Hlusta má á fréttina hér að neðan.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×