Innlent

Guðni for­seti og Vig­dís minnast Hin­riks með hlýju

Heimir Már Pétursson skrifar
Guðni forseti heilsar hér upp á Margréti Danadrottningu en við hlið hennar stendur Hinrik prins. Myndin var tekin í opinberri heimsókn forseta Íslands og eiginkonu hans Elizu Reid til Danmerkur.
Guðni forseti heilsar hér upp á Margréti Danadrottningu en við hlið hennar stendur Hinrik prins. Myndin var tekin í opinberri heimsókn forseta Íslands og eiginkonu hans Elizu Reid til Danmerkur. Vísir/Getty

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir að hugur hans og Elízu sé hjá Margréti Þórhildi drottningu og fjölskyldu hennar nú þegar Hinrik prins sé fallinn frá. Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti þekkti prinsinn ágætlega og segir þau ávallt hafa náð vel saman.



Hinrik prins hitti fimm af sex forsetum Íslands, alla nema Svein Björnsson. Það vakti athygli þegar Guðni Th. Jóhannesson og Elíza fóru í opinbera heimsókn til Danmerkur fyrir ári að prinsinn tók þátt í móttöku þeirra. En hann hafði þá verið pensjónisti í eitt ár.



Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands minnist Hinriks með hlýju frá opinberri heimsókn hans og Elízu til Danmerkur í lok janúar í fyrra. Drottningin og Hinrik hafi verið góðir gestgjafar.



„Hugur okkar er hjá Margréti Danadrottningu og konungsfjölskyldunni. En það rifjast upp að Hinrik prins var skemmtilegur sessunautur. Talaði frönsku við Elízu og fínustu dönsku við mig og lék á alsoddi,“ segir Guðni.



Prinsinn hafi verið líflegur og haft gaman af því að ræða samtímastjórnmál og franska vínrækt.



Auðvitað var hann orðinn aldraður maður og þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ég hitti hann. En um hann á ég góðar minningar,“ segir Guðni.

Urðu vinir eftir opinbera heimsókn

Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands hitti Margréti drottningu og Hinrik í fyrsta skipti þegar hún fór í fræga opinbera heimsókn til Danmerkur árið 1981. Þá varð til sá misskilningur að drottningin hafi boðið Vigdísi upp á kryddsíld, þegar þær áttu í samræðum við blaðamenn sem á dönskunni er kallað krydsild, stundum kallað cross fire á ensku. Út frá þessum misskilningi varð til áramótaþáttur Stöðvar 2, Kryddsíld.



„Ég sat við hliðina á Hinriki prins náttúrlega, á milli þeirra hjóna. Þá kom það á daginn að ég get bjargað mér á frönsku og upp frá því urðum við ágætir mátar. Eiginlega vinir Hinrik prins og ég, sagði Vigdís þegar hún rifjaði upp kynni sín af Hinriki og Margréti með fréttamanni í dag.



Eftir þetta hittust þau Hinrik og Vigdís oft meðal annars í sameiginlegu kynningarátaki Norðurlandaþjóðanna „Skandinavian Today“ um allan heim. Vináttusamband þeirra lifði áfram eftir að Vigdís lét af embætti forseta Íslands.



„Hann var svo vænn maður - skemmtilegur og ég er nú að hnjóta um að það er ekki til neitt almennilegt orð yfir sjarmerandi á Íslensku. Hann var heillandi, hafði persónutöfra. Svo var hann gamansamur og fyndinn. Þann kann ég alltaf best að meta og við urðum ágætis vinir,“ segir Vigdís sem segist síðast hafa hitt Hinrik fyrir um þremur árum.


Tengdar fréttir

Hinrik prins látinn

Hinrik prins, eiginmaður Margrétar Þórhildar Danadrottningar er látinn, 83 ára að aldri. Hann andaðist í svefni átján mínútur yfir tólf í nótt að íslenskum tíma í höllinni í Fredensborg á Norður Sjálandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×