Handbolti

Bjarki Már fór í sömu skotkeppni og með landsliðinu og útkoman var sú sama

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Bjarki Már Elísson.
Bjarki Már Elísson.
Bjarki Már Elísson stóð sig vel í skotkeppni þýsku 1. deildarinnar á Facebook en hann var heimsóttur á æfingu Füchse Berlín á dögunum.

Hornamaðurinn magnaði var í fínni æfingu því að hann fór í sömu skotkeppni á æfingu íslenska landsliðsins í október á síðasta ári þegar að strákarnir voru að undirbúa sig fyrir tvo vináttuleiki gegn Svíum.

Bjarki sagði frá tæknininni sem hann beitir áður en hann tók til starfa en hann náði sama skori í Þýskalandi og hann gerði í Valshöllinni hér heima á síðasta ári.

Þá var hann með Rúnari Kárasyni í liði þeirra eldri á móti ungum í landsliðinu en óhætt er að segja að þeir eldri hafi rúllað kjúklingunum upp.

Hér að neðan má sjá báðar skotkeppninnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×